islendingabull

Friday, September 02, 2005

gaman, gaman

Það er gaman hjá mér í dag. Svo gaman að ég get hugsað mér að skrifa aftur. Síðustu vikur hafa verið frekar erfiðar, það var dauði í fjölskyldunni, alvarlegt umferðarslys og veikindi. Allt hlutir sem gera manni erfiðara með að skrifa.

En í dag er allt í góður lagi. Við erum komin með nýja nágranna fínt og þægilegt fólk. Það er loksins farið að kólna úti, og við erum að fá vin í heimsókn sem verður hjá okkur yfir helgi. Tengdó er komin heim af spítalanum og er að hressast, og littla frænka mín er farin að ganga (dugleg, dugleg).

Happy Friday!!!!!

JAKK! ég mundi allt í einu eftir því að ég þarf að ryksuga, og brjóta saman þvott. Ekki neikvæð, það er gaman að brjóta saman þvott - ekki satt??

0 Comments:

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home