islendingabull

Tuesday, May 24, 2005

Skólabíll

Við búum í uþb. eins kílómetra fjarðlæg frá barnaskóla nágrenisins, en sonurinn þarf samt að taka skólabílinn heim. Hann er búinn í skólanum rétt eftir hálf fjögur og er kominn heim um hálftíma síðar. 'I dag var ausandi rigning úti. 'Eg hafði því littlar áhyggjur þó að bíllinn yrði aðeins seinn.. Klukkan varð fjögur, svo varð hún hálf fimm, og ekkert bólaði á bílnum.

Um korter í fimm var ég farinn að verða ansi áhyggjufull. Þessi bær er fullur af barnaþjófum og brjálæðingum sem kunna ekki að keyra (er ég viss um þetta, þó að allt það fólk sem ég hef hitt hafi verið mjög þægilegt, og keyrir um á órispuðum bílum). Loksins hringdi síminn og rödd ritara skólans sagði mér að hafa ekki áhyggjur börnin væru öll heil á húfi eftir minniháttar árekstur við fólksbíl.

Sonurinn kom æðislega spenntur heim einsog hann hefði lent í rosa hrakningum. Bíllinn sem bakkaði á skólabílinn hafði víst þotið af slysstað um leið og ökumaðurinn áttaði sig á því hvað hefði gerst. Vegna þessa þurfti að kalla á lögregluna, og á skólastjórann(?). Sonurinn sagð að hann hefði þurft að gefa lögreglumanni fullt nafn, heimilisfang og símanúmer. Svaka fjör í Baltimore

2 Comments:

  • At 10:17 AM , Anonymous Anonymous said...

    Hann hefur haft gaman af þessu. Stuð, stuð, stuð.

     
  • At 6:26 AM , Blogger islendingabull said...

    Ég er bara fegin að ég hafi látið hann fara yfir heimilisfang og símanúmer einsog það hafi verið margföldunnartafla um leið og við fluttum hingað.

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home