islendingabull

Sunday, May 22, 2005

Hamborgararass og derhúfa

Það var rosa gott veður í dag, svo að við tókum þakið af jeppanum og fórum í bíltúr. Það eina slæma við blæju bíla er að vindurinn fer illa með hárið, svo að ég setti gel og hárlakk í hárið, svo að ekki eitt hár færi úr skorðum. Eftir þennan undirbúning setti ég bleiku derhúfuna þétt á blautann hausinn og var tilbúin í ferðalag. Þegar við loksins komum heim eftir dásamlegan bíltúr tók ég húfuna af hausnum og spurði einkasoninn hvort að hárið á mér væri ekki í lagi. Hann þekkir mig nóg til að segja mér stanslaust að ég sé alltaf falleg, svo að á leiðinni að líta á mig sagði hann "mom your hair is always.. WOW!! what happened to you?"

0 Comments:

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home