islendingabull

Monday, May 16, 2005

Sunnudagsmatur

Maðurinn ákvað að elda kvöldmatinn í gær. Venjulega þegar hann eldar er náð í síma og kredit kort, en ekki í gær. Það þurfti að blanda saman rækjum og avacado sem og öðrum hráefnum. fyrst þarf hann að finna öll verkfæri og eldhústæki til starfsing. Þetta er frekar auðvelt fyrir hann "WERE IS THE FOOD PROCESSOR?, are we out of butter?, Honey can you find......" 'Eg bendi honum samviskusamlega á þetta alltsama, dauðfegin að þurfa ekki að elda sjálf. 'Eg er um það bil að setjast niður til að slappa af þegar alltíeinu hendist maðurinn sér yfir vaskinn, blóð fossandi útum allt. Auminginn hafði skorið 3cm langan skurð niður litla puttann, og svaka djúpann. Hann hefur enga tilfinningu í helmingi fingursins. 'Eg stakk uppá því að fara til læknis. Maðurinn þurfti greinilega nokkur spor, en ég er send útí apótek í staðin til að leita af plástri.

Þetta á eftir að verða fallegasta ör, svo nú þarf að semja nógu hetjulega sögu með því án þess að nefna eldhússtörf.

0 Comments:

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home