'Eg nenni ekki að vera til...
'Eg er fjarska "andlaus" einsog mamma hefði sagt. 'Eg nenni ekki að gera nokkurn skapaðan hlut. Þetta kemur stundum fyrir, en mér finnst einsog þetta gerist oftar eftir að ég varð heimavinnandi. Kanski að þetta sé útaf því að mér leiðist húsverk meira en nokkuð annað í heiminum. 'Eg gæti sýnt ykkur myndir af þvotta fjallinu mínu, en ég myndi líklega skammast mín aðeins of mikið. 'Eg kem samt að mjög hreinlegu fólki, og það er líklega ekki hægt að segja að það sé drasl hjá mér. 'Eg held að fjölskyldan mín geti vanist því að vera nærbuxnalaus, eða jafnvel lært á þvottavélina. Neyðin kennir nöktum manni að spinna *....Jah, ég er bara að undibúa einkasoninn undir lífið. Mér líður mun betur núna.
*neyðin kennir víst naktri konu að spinna, en ég held þessi setning geti gengið jafnt fyrir bæði kynin nú til dags.
*neyðin kennir víst naktri konu að spinna, en ég held þessi setning geti gengið jafnt fyrir bæði kynin nú til dags.


3 Comments:
At 11:46 AM ,
Anonymous said...
Velkomin á Bloggið, gaman að lesa um ævintýrin í útlandinu. Svo les ég nú reglulega T.P líka. Keep up the good work
At 5:44 PM ,
Anonymous said...
Gaman að sjá þig hér! Ekki vera með móral yfir þvottafjallinu. Við stofnum félag latra húsmæðra og berjumst fyrir jafnri virðingu á við snyrtipinnana.
At 5:09 PM ,
islendingabull said...
ég kann vel við það FLH er hér með stofnað. Ég þvoli ílla snyrtipinnana, þeir/þær láta okkur líta svo ílla út.
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home